Kveikt í jólageitinni

Jólageitin við Ikea heyrir nú sögunni til en kveikt var …
Jólageitin við Ikea heyrir nú sögunni til en kveikt var í henni í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jólageitin við Ikea í Kauptúni í Garðabæ fékk ekki að standa lengi þetta árið en kveikt var í geitinni um þrjúleytið í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er geitin gjörónýt.

Geitin, sem var sex metra há, á ættir að rekja til Svíþjóðar og skipar þar veigamikinn sess í jólahaldinu. Var geitin sett upp í lok október þannig að hún fékk að standa óáreitt í einn mánuð fyrir skemmdarvörgum.

Geitin var hér í sinni þriðju heimsókn en sú fyrsta fékk skjótan endi þegar brennuvargar kveiktu í henni. Í fyrra þurfti geitin að berjast við íslenskan vetur í Kauptúni og fauk um koll einn daginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert