Æskulýðsfélög gefa tvo brunna, 20 hænur og 18 geitur

Sr. Guðrún afhendir Jónasi framlagið. Sigríður Rún einnig á myndinni.
Sr. Guðrún afhendir Jónasi framlagið. Sigríður Rún einnig á myndinni.

Á landsmóti Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar á Egilsstöðum í lok október var með ýmsum hætti staðið fyrir fjáröflun fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Malaví. Í hópastarfi undirbjuggu unglingarnir karnival sem haldið var í Íþróttamiðstöðinni, varningur var seldur, söngur ómaði og dansinn dunaði. Góðir gestir frá Malaví tóku þátt. Æskulýðsfélög höfðu einnig staðið fyrir fjáröflun í aðdraganda mótsins.

430.00 krónur eru afrakstur af söfnuninni. Þessir fjármunir duga fyrir tveim brunnum, 20 hænum og 18 geitum. Brunnur með hreinu vatni gjörbreytir aðstæðum til hins betra, heilsan verður betri og stúlkur sem áður þurftu að sækja vatn á skólatíma geta nú farið í skóla. Hænur og geitur gefa af sér egg, kjöt og mjólk og auka þannig fjölbreytni næringarefna og fæðuöryggi.

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir, formaður Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ)  og Sigríður Rún Tryggvadóttir  framkvæmdastjóri ÆSKÞ afhentu Jónasi Þ. Þórissyni framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar framlagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert