Aukið álag - rýrari kjör

mbl.is/Hjörtur

Iðjuþjálfafélag Íslands fagnar þeirri umræðu sem átt hefur sér stað síðustu vikur um kjaramál nokkurra fagstétta. Ljóst er að iðjuþjálfar hafa dregist talsvert aftur úr í launum á síðustu árum. Það vekur sérstaka athygli að meðalhækkun launa iðjuþjálfa frá október 2008 er einungis 4,4% sem er langt fyrir neðan þær hækkanir sem kjarasamningar kveða á um. Þetta er með öllu óásættanlegt. Til samanburðar má nefna að laun BHM félaga hafa hækkað um 15% að meðaltali og laun á almennum markaði hafa hækkað langt umfram laun opinberra starfsmanna.

Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu.

„Iðjuþjálfar hafa síðustu ár þurft að ganga í gegnum miklar þrengingar í sínum störfum. Álag hefur aukist jafnt og þétt, kjör rýrnað auk þess sem stöðugar skipulagsbreytingar  hafa bitnað hart á stéttinni,“ segir í ályktuninni.

Ekki hefur verið gengið frá stofnanasamningi við Iðjuþjálfafélag Íslands fremur en við önnur félög sem starfa innan LSH og fordæmir stjórn Iðjuþjálfafélagsins því ástandi. Byrjunarlaun iðjuþjálfa á Landspítala eru nú 266.000 kr. á mánuði. Ljóst er að erfitt er að framfleyta fjölskyldu á þessum launum og má velta fyrir sér hvort að atgervisflótti fari að bresta á í stéttinni, segir ennfremur í ályktuninni.

Stjórn Iðjuþjálfafélags Ísland fagnar yfirlýsingu velferðarráðherra um að tímabært sé að leiðrétta launakjör nokkurra stétta, m.a. iðjuþjálfa. Hvetur stjórnin ráðherra til að standa við orð sín og leiðrétta kjör heilbrigðisstétta sem sannanlega standa höllum fæti í launakjörum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert