Ísland fær lokaaðvörun

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Ísland og Noregur þurfa að herða eftirlit með peningaþvætti enn frekar, samkvæmt áliti sem eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent frá sér. Ísland og Noregur fá tvo mánuði til að gera viðeigandi ráðstafanir til að bregðast við álitunum, ella getur ESA ákveðið að fara með málin fyrir EFTA-dómstólinn.

Tímafrestur til að innleiða þriðju tilskipunina gegn peningaþvætti rann út 15. desember 2007. Bæði Noregur og Ísland hafa hafið innleiðingarferlið en eiga enn eftir að innleiða vissa hluta tilskipunarinnar. Samkvæmt núgildandi norskum og íslenskum lögum eru vissir aðilar sem veita þjónustu ekki undir eftirliti opinberra yfirvalda. Þetta er brot á EES-samningnum. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gaf út tvö rökstudd álit til ríkjanna, segir á vef ESA. Rökstudda álitið telst lokaaðvörun.

Samkvæmt norskum lögum eru aðilar á sviði fjárvörslu eða fyrirtækjaþjónustu og háar fjármagnsfærslur ekki undir eftirliti yfirvalda. Á Íslandi eru fasteignasalar og endurskoðendur ekki undir slíku eftirliti. Noregur og Ísland verða að skipa yfirvöld í þeim tilgangi að hafa skilvirkt eftirlit með og tilkynna um grunsamlegar fjármagnsfærslur framkvæmdar af slíkum þjónustuaðilum.

Tilgangur eftirlitsins er að koma í veg fyrir og berjast gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverkastarfsemi og tryggja þannig traust á fjármálamarkaðnum og öðrum mörkuðum.

Norsk og íslensk yfirvöld hafa viðurkennt að tilskipunin hafi ekki verið innleidd á fullnægjandi hátt en hafa enn sem komið er ekki fundið skilvirka lausn á málinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert