Sex nýjar kærur gegn Karli Vigni

Karl Vignir var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í síðustu …
Karl Vignir var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í síðustu viku. Pressphotos.biz

Sex nýjar kærur vegna kynferðisbrota hafa verið lagðar fram gegn Karli Vigni Þorsteinssyni á síðustu dögum. Þær snúast allar um kynferðisbrot Karls gegn fullorðnu fólki. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Karl Vignir hefur viðurkennt að hafa níðst kynferðislega á tugum barna og ungmenna á síðustu áratugum. Þau brot eru flest fyrnd. Hann var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á miðvikudag í síðustu viku vegna gruns um að hafa framið kynferðisbrot á síðustu árum sem ekki eru fyrnd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert