Fimm nýjar kærur gegn Karli Vigni

Karl Vignir var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í síðustu …
Karl Vignir var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í síðustu viku. Pressphotos.biz

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á kynferðisbrotum karls á sjötugsaldri, Karls Vignis Þorsteinssonar, miðar ágætlega, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Alls hafa fimm mál gegn honum borist til lögreglu og eru fjórir karlar og ein kona þolendur í áðurnefndum málum.

Karl Vignir var handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald, en þá höfðu borist kærur vegna brota mannsins sem hugsanlega eru ófyrnd. Í kjölfarið hafa fleiri kærur verið lagðar fram á hendur manninum, en eins og áður sagði eru nýju málin fimm talsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert