Tarantino aðstoðar Guðmund Felix

Guðmundur Felix Grétarsson fékk á dögunum gjöf frá aðstandendum kvikmyndarinnar Django Unchained eftir Quentin Tarantino. Um er að ræða klapptré áritað af sjálfum Tarantino og öllum stjörnunum sem leika í myndinni; Leonardo DiCaprio, Christoph Waltz, Jamie Foxx, Samuel L. Jackson, Kerry Washington, James Remar, Dennis Christopher og Walton Goggins. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu.

Guðmundur Felix missti báða handleggi rétt neðan við axlir í vinnuslysi 12. janúar 1998. Hann hefur stefnt ötullega að því allar götur síðan að fá grædda á sig nýja handleggi, en hefur ekki átt möguleika á aðgerðinni fyrr en nú. Hún verður framkvæmd af helstu sérfræðingum heimsins þessu sviði í Lyon í Frakklandi. 

Tarantino og leikarar kvikmyndarinnar fengu fregnir af fyrirhugaðri handarágræðslu Guðmundar og árituðu handa honum klapptréð. Aðgerðin er mjög kostnaðarsöm og því hefur Guðmundur ákveðið að selja klapptréð til að afla fjár. Upphæðin rennur svo óskipt í söfnun Guðmundar til að draumur hans geti orðið að veruleika.

Uppboð á klapptrénu er hafið á eBay.

Django Unchained er frumsýnd í dag í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Sambíóunum Egilshöll og Borgarbíói Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert