Dregur úr langtímaatvinnuleysi

Morgunblaðið/Eggert

Af þeim sem voru atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2012 voru að jafnaði 3.400 manns búnir að vera atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur eða 1,9% vinnuaflsins. Til samanburðar höfðu 2.900 manns verið atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur á þriðja ársfjórðungi 2012 eða 1,7% vinnuaflsins. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á fjórða ársfjórðungi 2012 höfðu um 3.500 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 1,4% alls vinnuaflsins. Þetta merkir að 29,3% allra atvinnulausra hafa verið atvinnulausir í ár eða meira. Á þriðja ársfjórðungi 2012 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 3.300 manns sem er 1,8% vinnuaflsins eða 35,6% allra atvinnulausra.

Á fjórða ársfjórðungi 2012 voru að jafnaði 176.800 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði og fjölgaði um 0,5% frá sama tíma ári áður eða um 800 manns. Jafngildir þetta 78,8% atvinnuþátttöku. Fjöldi fólks utan vinnumarkaðar var 47.600, sem er fækkun um 1% frá fyrra ári eða um 500 manns. Atvinnuþátttaka karla var 81,4% og kvenna 76,1%.

Á fjórða ársfjórðungi 2011 voru alls 176.000 á vinnumarkaði eða 78,5% atvinnuþátttaka og utan vinnumarkaðar voru þá 48.100. Atvinnuþátttaka karla var 82,7% og kvenna 74,3%.

Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra (vinnuafl) af mannfjölda.

Á fjórða ársfjórðungi 2012 voru að meðaltali 8.400 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4,7% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 5,4% hjá körlum og 4% hjá konum. Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2012 var 168.400 manns eða 75% af mannfjölda. Hlutfall starfandi karla var 77% og starfandi kvenna 73,1%.

Þegar á heildina er litið fækkaði atvinnulausum um 2.200 frá fjórða ársfjórðungi 2011. Atvinnulausum konum fækkaði um 1.200 og atvinnulausum körlum um 1.000. Starfandi fjölgaði á þessu tímabili um 3.000.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert