Makrílkvótinn minnkaður um 15%

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. mbl.is/Ómar

Makrílkvóti fyrir árið 2013 hefur verið ákveðinn 15% minni en á síðasta ári en fram kemur á vefsíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins að það sé í samræmi við veiðiráðgjöf Alþjóða hafrannsóknarráðsins ICES. Kvótinn í ár nemur alls 123.182 tonnum.

Fram kemur að áætlað sé að árið 2012 hafi heildarveiði Evrópusambandsins, Noregs, Íslands, Færeyja og Rússlands á makríl verið 920 þúsund tonn og nam veiðihlutur Íslands um 16%. Færeyjar og Rússland hafa ekki gefið út makrílkvóta vegna ársins 2013 en ef báðar þjóðirnar minnka sína veiði um 15% eins og Noregur, ESB og Ísland hafa gert mun hlutur Íslands haldast um 16%.

Haft er eftir Steingrími J. Sigfússyni, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, á vefsíðunni að ákvörðun Noregs og ESB um að úthluta sér einhliða um 90% af ráðlagðri veiði læsi málið inni í óbreyttri stöðu. „Við getum ekki einir lækkað okkar hlutdeild meðan ekki nást sanngjarnir samningar, en á það leggjum við áfram mikla áherslu. Við núverandi aðstæður er því þessi ákvörðun næsta sjálftekin.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert