Ekki öll kurl komin til grafar í FBI-málinu

Birgitta Jónsdóttir.
Birgitta Jónsdóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar og frambjóðandi Pírata, segir að FBI hafi komið hingað til lands vegna Wikileaks. Þeir hafi ekkert erindi haft hingað vegna yfirvofandi tölvuárásar, þá aðstoð hefðu þeir getað veitt annars staðar frá. 

Þetta sagði Birgitta í umræðum um málið í þættinum Vikulokunum á Rás 1 í morgun.

Birgitta sagði málið með ólíkindum. Hún sagði að pilturinn sem FBI ræddi við hér á landi hefði unnið sem sjálfboðaliði hjá Wikileaks. Hins vegar hefði komist upp um alvarleg ósannindi hans er hann var handtekinn. Þá hélt hann því fram að hann hefði verið handtekinn fyrir tengsl við Wikileaks sem var ekki rétt.

Birgitta gagnrýndi það að upplýsingar um yfirvofandi tölvuárás á stjórnarráðið hefðu ekki verið kynntar þingmönnum, t.d. þeim sem sæti áttu í allsherjarnefnd. Þann lærdóm hefði átt að draga af hruninu.

Birgitta lýsti því í þættinum að FBI hefði skoðað hennar persónulegu gögn í gegnum netið. „Þegar þú sendir mér póst þá er FBI að skoða hann. Er það í lagi? Nei.“

Hún sagðist ekki hafa fundið fyrir miklum stuðningi íslenskra þingmanna vegna málsins.

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna, sagði ekki lagi að FBI hafi komið hingað með heimild til að skoða ákveðið mál en svo farið að skoða annað. Hún ítrekaði að von væri á greinargerð frá innanríkisráðuneytinu um málið.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem einnig var gestur Vikulokanna í morgun, sagði að skýringar yrðu að fást um það hvort að ráðherra hefði verið að skipta sér af rannsókn máls. Slíkt gengi einfaldlega ekki upp. Eins sagðist hann velta fyrir sér af hverju íslensk yfirvöld afþökkuðu aðstoð FBI við að rannsaka njósnatölvuna svokölluðu sem fannst í herbergi á skrifstofum þingmanna.

Birgitta tók undir það. Hún sagðist vilja komast til botns í því máli sem hefði verið reynt að „smyrja“ á sig.

Katrín sagði ljóst að ekki væru öll kurl komin til grafar í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert