Steingrímur Sævarr greiði eina milljón

Steingrímur Sævarr Ólafsson
Steingrímur Sævarr Ólafsson

Hæstiréttur hefur dæmt fyrrverandi ritstjóra vefritsins Pressunar til að greiða manni sem bauð sig fram til stjórnlagaráðs 200 þúsund krónur í miskabætur og 800 þúsund krónur í málskostnað vegna ærumeiðandi ummæla sem birtust í miðlinum. Ummæli voru jafnframt ómerkt.

Ægir Geirdal Gíslason höfðaði málið og krafðist þess að sex tilgreind ummæli um meint kynferðisbrot hans gegn systrum yrðu dæmd dauð og ómerk.

Hæstiréttur féllst á að þeir sem gæfu kost á sér til trúnaðarstarfa í þágu almennings yrðu að þola umfjöllun á opinberum vettvangi sem snerti hæfni þeirra og eiginleika og hvort þeir væru traustsins verðir. Það gæti hins vegar ekki réttlætt að Ægir væri borin á brýn sú refsiverða háttsemi sem fram hefði komið hjá netmiðlinum. Hefði Ægir hvorki verið fundinn sekur um þá háttsemi sem hann var sakaður um né sætt rannsókn lögreglu af slíku tilefni.

Ummælin „Systur: Sitjum ekki þegjandi undir því að barnaníðingur bjóði sig fram til stjórnlagaþings“ og „Við gátum ekki setið þegjandi undir því að barnaníðingur byði sig fram til stjórnlagaþings“ og „Maðurinn er stórhættulegur og hann gengur laus“ sem birtust 7. nóvember 2010 í vefmiðlinum Pressan.is og ummælin „Systur láta ekki dóttur Ægis Geirdals sussa á sig – Barnaníð ekki einkamál fjölskyldu hans“ sem birtust 23. febrúar 2011 í sama miðli voru dæmd ómerkt.

Steingrímur Sævarr Ólafsson, þáverandi ritstjóri Pressunar, var dæmdur til að greiða Ægi 200.000 krónur í miskabætur og til að greiða honum 800.000 krónur í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti,

Ein ummælana sem krafist var ómerkingar voru birt eftir gildistöku laga nr. 38/2011 um fjölmiðla og var Steingrímur Sævarr ekki talinn bera ábyrgð á þeim þar sem þau voru réttilega höfð eftir nafngreindum einstaklingum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert