Slæmur og hættulegur vegur

Vegurinn undir Súðavíkurhlíð er mjög illa farinn.
Vegurinn undir Súðavíkurhlíð er mjög illa farinn. Kristal-photos/Þórður Sigurðsson

„Bara undir Súðavíkurhlíð taldi ég ellefu staði þar sem ójöfnur vegna skemmdanna á veginum myndu rekast upp undir bílinn minn,“ segir íbúi á Súðavík sem er orðinn langþreyttur á lélegu ástandi vegarins undir Súðavíkurhlíð.

Meðfylgjandi myndir tala sínu máli, en hann segir veginn þar afar illa farinn og að þannig hafi hann verið síðan í síðustu viku. „Ég veit til þess að bíldekk hafa rifnað og felgur skemmst.“

Að auki séu aðstæður þarna afar hættulegar. „Það er ekki eitt einasta vegrið á veginum undir Súðavíkurhlíð. Ef bíll rynni til á þessum óupplýsta vegi, þá væri það bara frjálst fall niður í sjó.“

Miklar skemmdir eru á veginum undir Súðavíkurhlíð.
Miklar skemmdir eru á veginum undir Súðavíkurhlíð. Kristal-photos/Þórður Sigurðsson
Vegurinn undir Súðavíkurhlíð.
Vegurinn undir Súðavíkurhlíð. Kristal-photos/Þórður Sigurðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert