Getur valdið óbætanlegu tjóni

Rauði kross Íslands harmar þá niðurstöður íslenskra stjórnvalda að senda hjón frá Erítreu úr landi, meðal annars vegna langs málsmeðferðartíma sem ekki er hægt að sjá að parið eigi sök á

Atli Viðar Thorstensen, verkefnastjóri hjá Rauða krossi Íslands, segir að máilið sýni að málsmeðferðartími hælisumsókna sé almennt alltof langur sem hafi afar neikvæðar afleiðingar í för með sér og geti valdið óbætanlegu tjóni fyrir þann sem þurfi að bíða þetta lengi.

„Það þýðir í raun að líf viðkomandi er sett á ís á meðan stjórnvöld eiga að vera að afgreiða umsóknir viðkomandi og það á við um mál þessara einstaklinga. Í þessu tilfelli erum við að tala um par sem hafa átt til meðferðar hælisumsóknir frá maí 2011 og er því heildarmálsmeðferðartími um 22 mánuðir og það án þess að umsóknir þeirra hafi fengið efnislega skoðun hérlendra stjórnvalda. Slíkur málsmeðferðartími er óþolandi og að mati Rauða krossins verður að skoða mál með hliðsjón af málsmeðferðartíma þegar hann dregst á langinn, sérstaklega þegar umsækjendur eiga enga sök á töfum í málsmeðferð,“ segir Atli.

Þá segir hann, að í þessu máli sé að auki um að ræða par sem eigi að senda til mismunandi landa sem leiði til aðskilnaðar þeirra. Rauða krossinum sé kunnugt um að parið hyggist leita til dómstóla til að fá skorið úr um réttmæti ákvörðunar íslenskra stjórnvalda að endursenda þau úr landi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Með tilliti til dóma á undanförnum misserum verði að teljast afar brýnt að hælisleitendur eigi þess raunverulegan kost að sækja mál sín fyrir dómstólum. Dómstólar hafi staðfest að bæði Útlendingastofnun og ráðuneytið sem æðra stjórnvald hafi ekki farið að ákvæðum stjórnsýslulaga við meðferð umsókna um hæli og þess vegna telji Rauði krossinn afar brýnt að parið sem hér um ræði fái að dvelja hérlendis á meðan dómstólar skeri úr um réttmæti þessara ákvarðana. Rauði krossinn harmar þess vegna þessa niðurstöðu stjórnvalda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert