Óttast áhrif fríverslunarsamnings án aðkomu EFTA

Espen Barth Eide og Össur Skarphéðinsson undirrita samstarfssamkomulag.
Espen Barth Eide og Össur Skarphéðinsson undirrita samstarfssamkomulag.

Hætta er á að fyrirtæki í EFTA-ríkjunum tapi samkeppnisstöðu gagnvart samkeppnisfyrirtækjum innan Evrópusambandsins ef Bandaríkin og Evrópusambandið ljúka gerð fríverslunarsamnings sín á milli einsog nú er fyrirhugað án þátttöku EFTA ríkjanna.

Þetta var rætt á fundum Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra með Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Norðmana og sömuleiðis á fundi Össurar og Trond Giske, utanríkisviðskiptaráðherra í opinberri heimsókn utanríkisráðherra í Noregi síðustu daga, samkvæmt fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

„Norsku ráðherrarnir voru sammála íslenska utanríkisráðherranum um að nauðsynlegt væri fyrir EFTA ríkin að freista aðkomu að samningnum, annaðhvort með tvíhliða samningum eða gegnum EFTA, og hafa aðkomu að samningagerðinni frá upphafi.

Samþykkt var að ræða leiðir í þessum efnum frekar á vorfundi EFTA ráðherranna. Fagnaði Trond Giske frumkvæði íslenska ráðherrans í málinu, en Össur hafði áður óskað formlega eftir að EFTA-ríkin ræddu málið hið fyrsta, í kjölfar bréfs er hann ritaði áður John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir fund með honum í Róm fyrir skömmu,“ samkvæmt fréttatilkynningu.

Í heimsókninni átti Össur fundi, auk þessara tveggja ráðherra, með Ola Borten Moe, olíumálaráðherra, og einnig með Jonas Gahr Störe, heilbrigðisráðherra Norðmanna. Ráðherra heimsótti Stórþingið og hitti þar Dag Terje Andersen, forseta þingsins, og átti fund með utanríkis- og varnarmálanefnd þingsins. Þá gekk ráðherra á fund Haraldar V Noregskonungs.

Á fundi utanríkisráðherranna var sjónum einkum beint að norðurslóðum og undirrituðu ráðherrarnir af því tilefni samkomulag um aukið samráð um þróun olíuiðnaðar, efnahagsþróun, ferðamannaiðnað, samgöngumál og almenn pólitísk málefni á norðurslóðum. Utanríkisráðherra ræddi um þau tækifæri sem felast í því að byggja upp þjónustu á Íslandi vegna olíuleitar, ekki eingöngu fyrir Drekasvæðið og svæðin við austurströnd Grænlands, heldur einnig ráðist norsk stjórnvöld í leit á Jan Mayen svæðinu. Lega Íslands, hérlend tækni- og verkþekking, sem og hafnaraðstaða og innviðir á Norður- og Austurlandi gera landið að ákjósanlegri þjónustumiðstöð vegna þróunar olíuiðnaðar á svæðinu norður af Íslandi, samkvæmt fréttatilkynningu.

„Ráðherrarnir lýstu ánægju með vísindasamstarf ríkjanna sem handsalað var í september 2011, en prófessorsstaða við Háskólann á Akureyri hefur nú verið sett á fót og 37 styrkjum hefur þegar verið úthlutað til rannsókna og fræðistarfa tengdum málefnum norðurslóðaum. Ísland og Noregur leggja áherslu á öflugt starf Norðurskautsráðsins og ræddu ráðherrarnir helstu málefni sem verða á dagskrá næsta ráðherrafundar ráðsins í maí næstkomandi.

Ráðherrarnir ræddu Evrópumál, málefni Samningsins um evrópska efnahagssvæðið og Atlantshafsbandalagsins, um norræna samvinnu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og málefni Palestínu. Þá fór ráðherra ítarlega yfir stöðu aðildarviðræðna Íslands við ESB og makríldeiluna,“ segir ennfremur í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert