Hekla heldur ró sinni

Það var skýjað við Heklu kl. 7:30 í morgun. Mynd …
Það var skýjað við Heklu kl. 7:30 í morgun. Mynd tekin úr vefmyndavél Mílu.

Einn minniháttar skjálfti varð við Heklu um klukkan þrjú í nótt, en hann mældist vera 0,4 stig. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er ástandið óbreytt en áfram er fylgst grannt með fjallinu.

Í gær lýsti ríkislögreglustjórinn og lögreglustjórinn á Hvolsvelli yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðhræringa í Heklu. Þá hafði Veðurstofan upplýst almannavarnadeild ríkislögreglustjóra um óvenjulegar jarðhræringar í Heklu.

Þá hækkaði Veðurstofan eftirlitsstig Heklu í gult vegna flugumferða, sem þýðir að eldfjallið sýni óvenjulega virkni.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarrás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf. Óvissustigi er lýst yfir til þess að upplýsa viðeigandi viðbragðsaðila og er ákveðið ferli í skipulagi almannavarna og það lægsta af þrem.

Í ljósi þessa vilja ríkislögreglustjórinn og lögreglustjórinn á Hvolsvelli vara við ferðum fólks á Heklu á meðan óvissustig er í gildi.

Hekla í vefmyndavél Mílu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert