Ásbjörn nýr ræðukóngur

Ásbjörn Óttarsson (l.t.h.) og Þráinn Bertelsson töluðu mest og minnst. …
Ásbjörn Óttarsson (l.t.h.) og Þráinn Bertelsson töluðu mest og minnst. Milli þeirra er Árni Johnsen. mbl.is/Heiddi

Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ræðukóngur 141. Alþingis.

Hann talaði samtals í 1.146 mínútur eða rúmar 19 klukkustundir í 111 ræðum, að meðaltali var hver ræða rúmar tíu mínútur, þá gerði hann um 300 athugasemdir sem vöruðu í 546 mínútur. Ásbjörn talaði aðeins minna í ár en í fyrra var hann sjöundi í röðinni og talaði í 1.335 mínútur.

Af þeim tíu þingmönnum sem töluðu mest eru sex úr Sjálfstæðisflokki og þrír úr Framsóknarflokki. Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri-grænna, er sá sem talar minnst á þingi og nær samanlagður ræðutími hans ekki einni klukkustund. Hann tjáði sig einnig minnst á þingi í fyrra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert