Hópum vísað frá landinu

Erlendir ferðamenn voru fjölmennir við Gullfoss og Geysi um páskana.
Erlendir ferðamenn voru fjölmennir við Gullfoss og Geysi um páskana. mbl.is/Kristinn

Ferðaskrifstofur sem skipuleggja hvata- og ráðstefnuferðir til Íslands hafa þurft að vísa hópum frá vegna þess að ekki er hægt að útvega gistingu fyrir fólkið hér á landi.

„Þetta er í fyrsta sinn sem við finnum verulega fyrir skorti á hótelrými,“ segir Kristín Sif Sigurðardóttir,“ framkvæmdastjóri Atlantik. Iceland Travel hefur einnig þurft að vísa stöku hópum frá.

Kristín Sif bendir á að hvatahópar komi einkum utan háannatíma, t.d. í maí og september. Fái þeir ekki gistingu á þeim tíma sem óskað sé eftir sé oft hægt að semja um að hópar komi á öðrum tímum og landið verði því ekki alveg af viðskiptunum. „Þetta er lúxusvandamál sem mun vonandi halda áfram,“ segir hún.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir að fleira sé komið að þolmörkum; farið sé að bera á skorti á rútum og leiðsögumönnum yfir háannatímann. Gert er ráð fyrir álíka mörgum farþegum til Reykjavíkur með skemmtiferðaskipum og í fyrra þegar þangað komu 92.000 manns.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert