Ekkert spurst til konunnar síðan í gær

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og björgunarsveitir eru nú að hefja leit að konu á fimmtugsaldri sem ekkert hefur spurst til síðan kl. 20 í gær.

Konan var klædd í brúnan rúskinsjakka, bláar gallabuxur og svört leðurstígvél þegar hún fór að heiman í vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöld. Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út í vesturborginni, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert