Andlát: Júlíus Agnarsson

Júlíus Agnarsson upptökustjóri er látinn, 60 ára að aldri.

Hann fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum í Skólastræti 1, fyrir ofan Bernhöftstorfuna. Júlíus var í Miðbæjarskólanum og Gagnfræðaskóla Austurbæjar og lauk stúdentsprófi frá MR 1975.

Julíus var við tónlistarstörf með hljómsveitinni Pelikan í Kaupmannahöfn á árunum 1976-81. Hann starfaði við upptökur með Þursaflokknum um skeið og síðan með hljómsveitinni Stuðmönnum á árunum 1981-87.

Júlíus starfaði með Agli Ólafssyni við tónlistarstúdíóið Grettisgat en stofnaði Stúdíó Eitt 1986 og hefur starfrækt það síðan.

Stúdíó Eitt hefur hljóðsett og tekið upp ógrynni auglýsinga fyrir útvarp og sjónvarp, sem og heimildarmyndir og heimildarþætti og séð um hljóðsetningu á fjölda teiknimynda og barnaefnis fyrir ýmsa aðila. Þá hefur Stúdíó Eitt séð um hljóð- og talsetningu fyrir íslenska útgáfu á allflestum þekktustu teiknimyndum stóru Hollywood-kvikmyndaveranna frá 1992. Fyrirtækið hefur hljóð- og talsett 79 Walt Disney-kvikmyndir, 15 kvikmyndir fyrir Warner Brothers, 25 kvikmyndir fyrir Dreamworks og 14 aðrar kvikmyndir í fullri lengd, s.s. íslensku kvikmyndirnar Foxtrot, Hvíta víkinginn, Með allt á hreinu, Hvíta máva og Rokk í Reykjavík auk sjónvarpsþáttanna Nonna og Manna.

Barnsmóðir Júlíusar er Vilhelmína Kristinsdóttir. Synir Júlíusar og Vilhelmínu eru Eiríkur Kristinn, kvikmyndagerðarmaður, Agnar Már tölvunarfræðingur og Björn Ármann tölvunarfræðingur.

Foreldrar Júlíusar voru Agnar Guðmundsson skipstjóri og framkvæmdastjóri og k.h., Birna Petersen húsfreyja, sem bæði eru látin.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert