Útivistartími barna breytist í dag

Börn að leik.
Börn að leik. Rax / Ragnar Axelsson

Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag. Börn 12 ára og yngri mega vera úti til klukkan 22.00 og 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 24.00. Utan fyrrgreinds tíma mega börn ekki vera úti nema í fylgd með fullorðnum.

Þó má bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. 

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.

Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst meðal annars að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert