„Hef miklar áhyggjur af því ef Vigdís verður innanríkisráðherra“

Vigdís Hauksdóttir.
Vigdís Hauksdóttir. mbl.is/Ómar

„Ég hef miklar áhyggjur af því ef Vigdís Hauksdóttir verður innanríkisráðherra,“ segir Katrín Oddsdóttir, héraðsdómslögmaður. „Hún hefur í máli sínu lýst ákveðinni afstöðu til útlendinga sem ég held að sé mjög óheppileg hjá þeim sem fer með æðsta vald í málefnum útlendinga. Það ekki gott að hafa þarna einhvern sem talar í öfgum.“

Katrín hefur í lögmannsstörfum sínum tekið að sér mál fjölda hælisleitenda. „Málefni hælisleitenda virðast vera á frekar viðkvæmum stað. Það liggur frumvarp um breytingar á lögum um málaflokkinn, en maður veit ekkert hver afstaða nýs þings er til þess,“ segir Katrín.

Katrín segir ekki tækt að horfa í þessa miklu fjölgun hælisleitenda og draga af því almennar ályktanir.

„Þegar svona stór hópur kemur, eins og Króatarnir fyrr í ár, þá er það gripið og því slegið upp sem þróuninni, en hún er ekki svona rosaleg almennt. Þetta hefur sveiflast mikið milli ára, en það eru engar sannanir sem sýna fram á að fjöldi hælisleitenda sé að aukast gífurlega hér á landi líkt og stundum er haldið fram“ segir Katrín

Mikið álag á Útlendingastofnun

Katrín sagði að staða þeirra ríflega 20 hælisleitendamála sem hún hefði á sinni könnu væri algjörlega óbærileg. Elstu málin segir hún vera frá árinu 2009, en það mál væri reyndar í kærumeðferð hjá innanríkisráðuneytinu.

„Ég hef kært meðferð mála til ráðuneytisins fyrir brot á málshraðareglu, en ráðuneytið er ekki búið að úrskurða um hvort málshraðareglan hafi verið brotin,“ segir Katrín. „Málshraðinn þarna er skelfilegur. Það kom mér samt skemmtilega á óvart á ráðstefnunni í HR á miðvikudaginn að fólk var ekki bendandi hvert á annað, heldur var fólk sammála um að úrbóta væri þörf.“

Katrín sagði hælisleitendur fá skipaðan lögmann til að halda utan um mál sitt, en ekki væri greitt fyrir nema fimm tíma vinnu við mál hælisleitanda á fyrsta stigi. 

„Skýrslutakan tekur gjarnan um fjóra tíma. Þá á eftir að semja greinargerð með málinu. Þú getur rétt ímynda þér hvernig smiður tæki því ef ráðuneytið neitaði að greiða honum fyrir nema tvo tíma við þakviðgerð sem tók hann 10 tíma,“ segir Katrín. 

„Það er auðvitað ekki aðalatriðið í þessu, en það er ekki eðlilegt að þeir sem aðstoða hælisleitendur eigi að gefa vinnuna sína.“

Frétt mbl.is: Flóttamenn oft fórnarlömb pyndinga

Frétt mbl.is Löng málsmeðferð í raun vanræksla

Frétt mbl.is: Bann við pyndingum nýtur sérstöðu

Katrín Oddsdóttir
Katrín Oddsdóttir mbl.is
Katrín telur málshraða í málefnum hælisleitenda hjá Útlendingastofnun óbærilegan
Katrín telur málshraða í málefnum hælisleitenda hjá Útlendingastofnun óbærilegan mbl.is/Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert