Úrskurðaður í gæsluvarðhald

Íslendingurinn hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald.
Íslendingurinn hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. mbl.is

Íslendingurinn sem grunaður er um morð í Noregi hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Hann hefur staðfest flestar þær upplýsingar sem lögreglan hefur aflað um atburðarásina en segir minni sitt gloppótt.

Fórnarlambið hét Helge Dahle og var fimmtugur. Hinn grunaði er 38 ára og hefur verið búsettur í Noregi í þrettán ár. Aðalvitnið í morðmálinu er milljarðamæringur að nafni Knut Axel Ugland.

Atvikið átti sér stað í samkvæmi í Valle en flestir gestanna voru farnir þegar árásin átti sér stað. Ugland segir í samtali við Agderposten að fram að henni hafi allir skemmt sér vel og Dahle og hinn grunaði hafi verið í góðu skapi, spjallað saman og hlegið. 

Að sögn lögreglunnar hefur verið rætt við vitni sem eiga erfitt með að muna nákvæmlega hvað gerðist um nóttina og hver aðdragandi árásarinnar var, en Dahle var stunginn nokkrum sinnum með hnífi. Frumskýrsla hefur verið tekin af manninum en formleg yfirheyrsla mun fara fram síðar í vikunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert