Rostungur flatmagar á Reyðarfirði

Rostungurinn í sólinni á Reyðarfirði.
Rostungurinn í sólinni á Reyðarfirði. Kjartan Reynisson

Það var heldur óvenjuleg sjón sem blasti við Kjartani Reynissyni á Reyðarfirði í dag. Hann var að hjóla frá Fáskrúðsfirði að Reyðarfirði þegar hann sér eitthvert hlass í fjörunni.

Í fyrstu taldi Kjartan þetta vera dauðan hval, en að hjólareiðatúr loknum þegar hann ætlaði að athuga málið sá hann að þarna var á ferðinni rostungur. 

„Við erum bara hérna tveir einir í heiminum, ég og rostungurinn,“ sagði Kjartan þegar mbl.is náði tali af honum í dag. Lá Kjartan þá skammt frá rostungnum. 

„Hann blæs heldur ógnandi ef maður nálgast hann,“ segir Kjartan sem telur hann vera tæpa 3 metra að lengd og örugglega vel á annað tonnið. „Hann er búinn að vera hér í sólinni í allan dag.“

Kjartani sýnist hann ekki vera á förum. Aðspurður hvort hann hafi einhvern tímann séð eitthvað þessu líkt segir Kjartan svo ekki vera þó hann hafi verið viðloðandi sjávarútveg lengi.



Rostungurinn flatmagar nú á ströndinni á Reyðarfirði.
Rostungurinn flatmagar nú á ströndinni á Reyðarfirði. Kjartan Reynisson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert