Manna sjúkraflug eðlilega á ný

Sjúklingur borinn um borð í flugvél Mýflugs. Myndin er úr …
Sjúklingur borinn um borð í flugvél Mýflugs. Myndin er úr safni.

Tekin var ákvörðun um það síðdegis í gær að manna sjúkraflug Mýflugs aftur með venjulegum hætti. Þegar hefur verið farið eitt sjúkraflug og annað er í gangi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mýflugi. Þá segir að á samverustund starfsmanna Mýflugs og Slökkviliðs Akureyrar í gær hafi komið fram að liðið telji sig áfram hafa verk að vinna.

Vettvangsrannsókn er um það bil lokið. „Við tekur að áframhaldandi vinna við að skýra út hvað gerðist og hvernig megi koma í veg fyrir sambærileg slys í framtíðinni. Unnið verður af heilum hug með rannsóknaraðilum auk eigin skoðunar. Í þeirri vinnu verður ekkert undan dregið,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert