Nöfn stúlknanna sem létust í bílslysi

Natalia Gabinska (t.v.) og Magdalena Hyz (t.h.).
Natalia Gabinska (t.v.) og Magdalena Hyz (t.h.). mbl.is

Stúlkurnar sem létust í bílslysi á Suðurlandsvegi skammt austan við Meðallandsveg sunnudaginn 4. ágúst hétu Natalia Gabinska og Magdalena Hyz.

Natalia Gabinska var fædd 6. mars 1998 í Póllandi, búsett í Póllandi en var hér í heimsókn hjá móður sinni sem einnig var farþegi í bifreiðinni. 

Magdalena Hyz var fædd 9. maí 1997. Magdalena var búsett í Póllandi en var í heimsókn hér á landi og dvaldi hjá frændfólki sínu. Stúlkurnar tvær tengdust vinaböndum.

Frétt mbl.is: Safnað fyrir hinstu för stúlknanna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert