Nafn mannsins sem lést

mbl.is

Maðurinn sem lét lífið í kjölfar áreksturs á Suðurlandsvegi við Þingborg í gær hét Leifur Ársæll Leifsson og var til heimilis í Vestmannaeyjum.

Leifur var fæddur árið 1955. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn, auk barnabarna.

Leifur Ársæll var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild Landspítalans í Fossvogi síðdegis í gær, þar sem hann lést.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert