Hvetja ráðherra að sýna áfram staðfestu

Samtökin Heimssýn
Samtökin Heimssýn Heimssýn

Heimssýn – hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum hvetur stjórnarflokkana til þess að standa við stefnu sína um að hætta formlega aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið. Heimssýn hvetur einnig utanríkisráðherra til þess að sýna áfram staðfestu í málinu, samkvæmt ályktun sem samtökin hafa sent frá sér.

Nú hefur verið sannað að um er að ræða aðlögunarferli en ekki könnunarviðræður eins og oft hefur verið haldið fram. Sú staðreynd að IPA-styrkirnir hafa verið stöðvaðir af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um leið og ferlið var stöðvað sýnir að þeir voru ætlaðir til þess að laga íslenska stjórnsýslu að lögum og reglum sambandsins,“ segir enn fremur í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert