Skylda foreldra að borga skólabækur

Krakkar kaupa bækur fyrir skólann.
Krakkar kaupa bækur fyrir skólann. Ernir Eyjólfsson

Umboðsmaður barna telur ástæðu til að brýna það fyrir foreldrum að það er þeirra hlutverk og skylda að leggja út fyrir skólabókum og ritföngum barna sinna. Geti þeir það ómögulega ættu þeir að hafa samband við félagsþjónustu sveitarfélaganna eða hjálparstofnanir.

Á vefsvæði umboðsmanns barna segir að rétturinn til menntunar sé ein mikilvægustu grundvallarréttindi barns. Rétturinn sé meðal annars verndaður í Barnasáttmálanum og íslenskri löggjöf um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. „Þá er í 28. gr. barnalaga fjallað um inntak forsjár en í forsjá felst m.a. skylda foreldra til að sjá til þess að börn þeirra njóti menntunar og starfsþjálfunar í samræmi við hæfileika þeirra og áhugamál og nái þannig að þroska hæfileika sína á þann máta sem best hentar hverju barni.“

Þá segir að dæmi séu um að unglingar sem hafi verið í vinnu í sumar taki þátt í kostnaði við bókakaup með foreldrum sínum eða sjái alfarið um að kaupa inn fyrir skólann sjálfir. „Umboðsmaður barna vill því árétta að það er hlutverk og skylda foreldra að leggja út fyrir þessum innkaupum í samræmi við ofangreind sjónarmið laga. Sjálfsaflafé og gjafafé barna er eign þeirra sjálfra og eiga þau að ráða hvernig því er varið, helst í samráði við foreldra. Ef foreldrar geta ómögulega lagt út fyrir bókum og ritföngum ættu þeir að hafa samband við félagsþjónustu sveitarfélaga eða hjálparstofnanir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert