Tré rifnaði upp með rótum í miðborginni

Tré rifnaði upp með rótum á mörkum Lækjargötu og Fríkirkjuvegar nú fyrir stundu. Lögregla lokaði Fríkirkjuvegi til suðurs á meðan starfsmenn Reykjavíkurborgar söguðu tréð og fjarlægðu það.

Í viðvörun frá Veðurstofu Íslands er gert ráð fyrir miklu hvassviðri eða stormi vestan til á landinu þegar líður á daginn. Einnig eru horfur á roki allra nyrst í nótt. Þá má gera ráð fyrir mikilli úrkomu á NV-landi og Tröllaskaga í kvöld og nótt, rigningu á láglendi en snjókomu ofan 150-250 metra yfir sjó.

Búast má við mjög snörpum vindhviðum (35 til 40 m/s) sunnan- og vestanlands í kvöld, en á austanverðu landinu á morgun, samkvæmt viðvörun sem Veðurstofan hefur gefið út.

Spáð er ófærð með snjókomu á vegum þegar komið er í 150–250 metra yfir sjó, sérstaklega um landið vestan- og norðanvert. Vegfarendur og ferðalangar eru hvattir til að kynna sér upplýsingar um veður og færð áður en lagt er af stað í ferðalög.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert