Rætt áfram um skuldamál heimilanna

Hagsmunasamtök heimilanna funduðu með ráðherranefnd um úrlausnir í skuldamálum heimilanna 27. ágúst síðastliðinn og lauk honum á þeim nótum að áframhald yrði á samræðu á milli samtakanna og ríkisstjórnarinnar um skuldamál heimilanna. „Það er sannarlega von stjórnar samtakanna að svo megi verða,“ segir í tilkynningu frá þeim. Fundurinn var haldinn að ósk samtakanna en markmið hans var að koma á framfæri sjónarmiðum þeirra „varðandi forgangsmál og þær leiðir sem samtökin telja vænlegastar í þessum efnum.“

Fram kemur að fulltrúar Hagsmunasamtaka heimilanna hafi vísað á fundinum til ítarlegrar þingsályktunartillögu um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. „Sérstaklega var lögð áhersla á mikilvægi þess að STRAX verði stöðvaðar allar fullnustugerðir eins og gjaldþrot og nauðungarsölur án undangenginna dómsúrskurða og að sett verði lög um endurupptökur mála hjá einstaklingum sem þegar hafa verið gerðir gjaldþrota, eignir þeirra seldar á nauðungarsölu eða á veðhafafundi hjá skiptastjóra á grundvelli ólögmætra lána. Auk þess var meðal annars fjallað um mikilvægi þess að dómsmál sem fjalla um lögmæti lána fái flýtimeðferð í gegnum dómskerfið, rýran afrakstur samráðs um gengislánamál, hlutverk og frammistöðu Umboðsmanns skuldara gagnvart skuldurum og vöntun á raunverulegum framfærsluviðmiðum þar sem tekið er mið af því hvað það kostar að lifa hófsömu, mannsæmandi lífi á Íslandi.“

Fundinn sátu fyrir hönd Hagsmunasamtaka heimilanna Vilhjálmur Bjarnason, formaður stjórnar, Pálmey Gísladóttir, varaformaður, og Guðmundur Ásgeirsson, erindreki. Fyrir hönd stjórnvalda voru á fundinum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, og  Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, auk aðstoðarmanna. Eygló Harðardóttir, húsnæðis- og félagsmálaráðherra, var boðuð á fundinn en sat hann ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert