Ákærðir fyrir tilraun til fjárkúgunar

mbl.is/Hjörtur

Ríkissaksóknari hefur ákært tvo menn fyrir tilraun til að kúga fé út úr sælgætisgerðinni Nóa-Síríusi.

Hótunin barst í byrjun árs í fyrra. Þó að ljóst væri frá upphafi að hótunin hefði á sér viðvaningslegt yfirbragð þá tók fyrirtækið hana mjög alvarlega og gerði lögreglunni strax viðvart. Brást hún hratt við og var aldrei nein hætta á ferðum.

Nói Síríus vill koma á framfæri þökkum til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir einstaklega fagmannleg vinnubrögð hennar í þessu máli. Málið er nú í sínum rétta farvegi fyrir dómstólum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert