Fannst látinn í Skessuhelli

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lík karlmanns fannst í Skessuhelli, sem er norðan við smábátahöfnina í Grófinni í Reykjanesbæ, í gær. Lögreglan á Suðurnesjum segir í tilkynningu að börn hafi orðið vör við manninn og fór sjúkralið og lögregla á vettvang kl. 15:56.

„Þar hafði sá hryggilegi atburður orðið, að karlmaður hafði svipt sig lífi. Börn sem voru þarna að leik urðu mannsins vör, en Skessuhellir er manngert birgi, sem er alla jafna fjölsótt af börnum og unglingum.

Rannsókn leiddi í ljós að maðurinn, sem var fertugur að aldri, var hælisleitandi sem hefur dvalið á gistiheimilinu FIT í Reykjanesbæ í skamman tíma ásamt syni sínum sem er á unglingsaldri. Barnaverndaryfirvöldum var gert viðvart og tóku þau drenginn í sína umsjá. Börnunum sem komu að manninum og forráðamönnum þeirra var veitt áfallahjálp í kjölfar atburðarins,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

Þá segir, að lögreglan á Suðurnesjum annist rannsókn málsins og muni ekki gefa frekari upplýsingar um málsatvik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert