Annie Mist hraustust í Dúbaí

Annie Mist
Annie Mist mbl.is/Eggert

Annie Mist Þórisdóttir, sem hlaut nafnbótina „hraustasta kona heims“, vann sigur á hreystimóti sem haldið var í Dúbaí um helgina. Æfingafélagi hennar og unnusti, Frederik Ægidius, var einnig sigursæll og endaði efstur í karlaflokki. 

Launin fyrir sigur í hverjum flokki voru að jafnvirði um sex og hálf milljón íslenskra króna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert