Rostungur flakkar milli Færeyja og Íslands

Rostungurinn hvílir lúin bein og hreifa við Jökulsárlónið í sumar, …
Rostungurinn hvílir lúin bein og hreifa við Jökulsárlónið í sumar, ferðamönnum til mikillar ánægju. mbl.is/Örn Óskarsson

Merktur rostungur hefur verið í ferðum milli Íslands og Færeyja undanfarna mánuði. Samkvæmt merkjum frá gervihnattasendi er hann nú í Reyðarfirði, eftir að hafa heimsótt Færeyjar.

Þetta er talið sama dýrið og skreið upp á Breiðamerkursand í síðasta mánuði og virtist þá nær dauða en lífi, að því er fram kemur í umfjöllun um flakk rostungsins í Morgunblaðinu í dag.

Ekkert varð af líknardrápi, sem ýmsir hugleiddu, og fljótlega eftir hvíldina við Jökulsárlónið virðist rostungurinn hafa hraðað sér til Færeyja.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Kauptu vikupassa

Lestu meira með vikupassa!

Fáðu þér vikupassa fyrir 2.185 kr. og þú færð aðgang að öllu efni úr blaði dagsins í dag og næstu 6 daga.

Kaupa vikupassa

Aðrar áskriftarleiðir »