Ákjósanlegur staður fyrir lyfjaþróun

Tölvugerð mynd sem sýnir hluta byggingarinnar.
Tölvugerð mynd sem sýnir hluta byggingarinnar.

„Þetta er tímamótamál og gífurlegt fagnaðarefni fyrir Reykjavík. Í fyrsta lagi hefur Reykjavík orðið ofan á í alþjóðlegri samkeppni um að ná þessari mikilvægu starfsemi og fjárfestingu til sín. Það sýnir hvað hægt er að gera með nánu samstarfi borgarinnar og háskólanna,“ sagði Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, en ráðið ákvað á fundi sínum í dag að úthluta Háskóla Íslands lóð við Sæmundargötu 15 - 19 vegna Vísindagarða.

„Í öðru lagi er þetta stærsta beina erlenda fjárfesting á Íslandi frá hruni. Síðast en ekki síst er þetta upphafið að uppbyggingu Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýri. Sú uppbygging felur í sér nýtt og spennandi nýsköpunarsetur og mikla innspýtingu í þekkingarhagkerfi borgarinnar með nýjan stóran vinnustað fyrir 200 starfsmenn í hátækniiðnaði. Öll þessi atriði eru í fullkomnu samræmi við nýja atvinnustefnu borgarinnar,“ sagði Dagur.

Mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands

„Þetta er mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands og við fögnum mjög fyrirhuguðu samstarfi við Alvogen og Reykjavíkurborg. Með þessu verkefni getur skólinn hagnýtt gríðarlega þekkingu sem hefur byggst upp í áratuga kennslu- og rannsóknarstarfi.  Samstarf af þessu tagi er gott dæmi um með hvaða hætti skólinn getur komið með beinum hætti að uppbyggingu verðmæta- og gjaldeyrisskapandi atvinnugreina á sama tíma og stórkostleg tækifæri skapast fyrir nemendur og vísindamenn í mörgum greinum,“ segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.

Hilmar B. Janusson, stjórnarformaður Vísindagarða og forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands segir að það skipti háskólann miklu að Alvogen  velji hann til væntanlegs samstarfs. 

„Ísland var einn af fleiri kostum sem fyrirtækinu stóð til boða við þessa uppbyggingu.  Það er til marks um þá miklu þekkingu sem byggð hefur verið upp hér í landinu að fyrirtækið vilji byggja upp þessa starfsemi í tengslum við háskólann hér,“ segir Hilmar.

Sjáum mikil tækifæri á þessu sviði

Dr. Fjalar Kristjánsson, framkvæmdastjóri tækni- og gæðasviðs Alvogen, mun stýra hönnun og uppbyggingu setursins, sem m.a. hefur verið unnin í samstarfi við íslensk fyrirtæki. Dr. Fjalar hefur áratuga reynslu af lyfjageiranum og hefur verið lykilstjórnandi hjá Alvogen, Actavis og Delta. Erlendir lykilstjórnendur með áratuga reynslu á sviði líftæknilyfja hafa einnig verið ráðnir til Alvogen og munu styðja við vöxt félagsins á þessu sviði.

„Ísland er ákjósanlegur staður fyrir lyfjaþróun þar sem einkaleyfaumhverfi hér á landi gerir fyrirtækjum kleift að hefja þróun og framleiðslu lyfja áður en einkaleyfi þeirra renna út. Þetta skapar ákveðið samkeppnisforskot fyrir Alvogen á heimsvísu. Við sjáum því mikil tækifæri á þessu sviði og áhugavert er að byggja upp slíka starfsemi á Íslandi. Við vonumst til að þetta verkefni nái fram að ganga og stjórn félagsins mun taka lokaákvörðun um málið þegar allir fyrirvarar eru frágengnir,“ segir Fjalar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert