Grindhvalurinn gæti verið mengaður

Grindhvalirnir voru skornir af miklum móð á Snæfellsnesi, en hætt …
Grindhvalirnir voru skornir af miklum móð á Snæfellsnesi, en hætt er við því að kjötið og spikið sé mengað kvikasilfri. mbl.is/Alfons Finnsson

Hætt er við því að kjöt og spik grindhvalanna sem syntu á land milli Rifs og Ólafsvíkur í byrjun september sé mengað. Matvælastofnun og Landlæknisembættið biðja fólk því að staldra við áður en það leggur sér kjötið til munns. Í Færeyjum hefur verið varað við neyslu grindhvals frá árinu 2008.

Margir stukku til og skáru sér bita til matar af hvalrekanum á Snæfellsnesi, þar sem tugir grindhvala strönduðu. Nágrannar okkar í Færeyjum hafa öldum saman nýtt sér grindhval sem syndir eða er rekinn á land, en vegna mengunarefna í afurðum grindhvals vara færeysk yfirvöld fólki alfarið frá því að neyta þeirra.

Margfalt meira kvikasilfur en í hrefnukjöti

Þrávirk lífræn efni og þungmálmar safnast upp í lífríkinu og finnast í meira magni eftir því sem ofar dregur í fæðukeðjunni. Grindhvalir eru efstir í fæðukeðjunni, samkvæmt Matvælastofnun.

„Niðurstöður rannsókna sýna að kjöt af grindhval inniheldur tvöfalt til þrefalt leyfilegt hámarksgildi kvikasilfurs í sjávarafurðum. Kvikasilfur er margfalt hærra í grindhval en íslensku hrefnukjöti. Auk þess er mjög hátt innihald af díoxíni, PCB efnum  og öðrum þrávirkum lífrænum efnum í spiki grindhvala,“ segir í frétt á vef Matvælastofnunnar í dag.

Þessi mikli munur liggur í fæðuvali. Hrefnan er skíðishvalur sem síar sjó til að afla fæðu en grindhvalur er tannhvalur og þeir veiða stærri fiska sér til matar.

Fyrir þá sem samt vilja nýta hvalrekann og smakka grindhval eru hér færeysku ráðleggingar sem giltu frá 1998 þar til 2008, en þá var farið að ráðleggja gegn allri neyslu á grindhval:

Spik

Vegna hás PCB innihalds í spiki er ráðlagt að fullorðnir borði grindhvalsspik mest einu sinni til tvisvar í mánuði. Hins vegar er besta leiðin til að vernda fóstur gegn hugsanlegum áhrifum PCB efna að stúlkur og konur borði ekki spik fyrr en þær hafa gengið með og fætt sín börn. 

Hvalkjöt

Kvikasilfur innihald í kjöti grindhvalsins er mjög hátt og því er ráðlagt að fullorðnir borði ekki meira en eina til tvær máltíðir í mánuði. Konur sem búast við að verða ófrískar innan 3 mánaða, ófrískar konur og konur með barn á brjósti skulu sleppa því að borða kjöt af grindhval.  

Innmatur

Lifur og nýru grindhvals ætti alls ekki að borða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert