Bæjarstarfsmenn á rafknúnu hjóli

Starfsmenn Áhaldahúss Seltjarnarness fara sælir og glaðir í útréttingar á vegum bæjarins á nýjum fararskjóta sem bærinn fjárfesti nýlega í. Rafknúnu reiðhjóli með vagni sem er afar hentugt til léttari flutninga. Með því að hjóla í ýmis léttari erindi og viðvik leysir það starfsmenn áhaldahússins undan notkun á bæjarbifreiðum sem sparar kostnað.

Almennt eru vegalengdir stuttar á Seltjarnarnesi en ef á móti blæs, eins og stundum vill verða á Nesinu, er auðvelt að létta undir með sér og virkja rafmótorinn á hjólinu. Starfsmenn eru ánægðir með þennan nýja flutnings- og ferðavalkost, sem auk þess að vera umhverfisvænn er fyrirferðarminni en bifreiðarnar mun sparneytnari og auk þess góð líkamsrækt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert