Björn Zoëga lætur af störfum

„Ég hef ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landspítala. Ég hef tilkynnt heilbrigðisráðherra þessa ákvörðun mína og afhenti uppsagnarbréfið nú fyrir stundu,“ segir Björn Zoëga fráfarandi forstjóri Landspítalans á vef spítalans.

„Fyrir þessari ákvörðun liggja ýmsar ástæður og ættu í það minnsta sumar þeirra ekki að koma á óvart í ljósi þess sem ég hef sagt og skrifað á undanförnum misserum,“ segir Björn og bætir við síðar í bréfi sínu að sér sé nú ljóst að hvað Landspítalann varðar sé nauðsynleg uppbygging ekki í augsýn. „Meðal annars þess vegna hef ég komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að standa upp frá góðu verki. Ég er stoltur yfir árangri  spítalans og starfsfólks hans en kýs nú að takast á við nýjar áskoranir. Nýr stjórnandi fær nú tækifæri til að leiða spítalann og það frábæra starf sem hér er unnið.“

Hann segir að á þeim sex árum sem hann hefur verið framkvæmdastjóri lækninga og síðar forstjóri hafi miklar breytingar orðið á rekstrarumhverfi spítalans. „Á sama tíma hefur tekist að mæta kröfum um mikinn niðurskurð en við höfum engu að síður náð að viðhalda viðunandi þjónustustigi og árangri. Öll gögn sem fyrir liggja staðfesta þennan eftirtektarverða árangur og er fyrst og síðast staðfesting á þeirri elju og fagmennsku sem einkennir starfið á spítala allra landsmanna.

Ég hef ítrekað bent stjórnvöldum á að lengra verði ekki gengið í niðurskurðaraðgerðum á Landspítala og að slíkt myndi leiða okkur í ógöngur. Ég hef lagt áherslu á þá grundvallarskoðun mína að enduruppbyggingartíminn sé núna, óbreytt ástand er ekki valmöguleiki. Með því á ég ekki einungis við að auka þurfi rekstrarfé spítalans heldur er umgjörð framtíðarstarfsemi hans einnig undir. Nýr Landspítali er m.a. forsenda þess að hér verði unnt að reka nútíma sjúkrahúsþjónustu sem laðar að hæft starfsfólk og veita góða þjónustu,“ segir Björn ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert