„Ríkasta kona á Íslandi“

Stellu var ákaft fagnað í dag, þegar Kári Þorleifsson veislustjóri …
Stellu var ákaft fagnað í dag, þegar Kári Þorleifsson veislustjóri sagði ömmu sína ríkustu konu á Íslandi. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Stella Stefánsdóttir á Akureyri fagnaði 90 ára afmæli í dag í faðmi fjölda ættingja sinna og vina á veitingastaðnum Bryggjunni. Afkomendur Stellu eru 189; hún eignaðist 14 börn, á 52 barnabörn, 106 langömmubörn og 17 langalangömmubörn. Von er á 190. afkomanda sínum í heiminn í nóvember.

„Ríkasta kona á Íslandi,“ sagði Kári Þorleifsson veislustjóri, þegar hann talaði um ömmu sína í gær og þá var vel klappað.

„Það er auðvitað alveg dýrlegt og þetta er allt saman besta fólk. Það er held ég það sem vantar í þessa blessuðu veröld, það eru einhver gæði og samheldni í fólki,“ segir Stella í Morgunblaðinu í dag um afkomendafjöldann. Hún hefur alla tíð búið á Akureyri, segist vera heilsuhraust og sér enn um sig sjálf. „Það er alltaf einhver sem lítur inn svo til daglega. Sjö barna minna eru í bænum og ég fer til skiptis til þeirra í mat. Ég reyni svo að bjarga mér að öðru leyti heima.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert