Vilja láta loka Kolgrafafirði

Síldardauði í Kolgrafafirði.
Síldardauði í Kolgrafafirði. Af vef umhverfisráðuneytisins/ Róbert Arnar Stefánsson

Bæjarráð Grundarfjarðar lýsir yfir áhyggjum vegna hægagangs stjórnvalda varðandi viðbrögð við mögulegum síldardauða í Kolgrafafirði. Eina leiðin til að tryggja að síld gangi ekki inn í Kolgrafafjörð sé að loka firðinum, segir í bókun ráðsins.

Þetta var bókað á fundi bæjarráðs í gær. Í bókuninni segir að á meðan ekki sé brugðist við vandanum nálgist síldin og „bendir allt til þess að ekki verði minna um síld á svæðinu en verið hefur undanfarna vetur.“

Á vegum umhverfisráðuneytis er unnið að gerð viðbragðsáætlunar um aðgerðir ef síld drepst í firðinum. „Skynsamlegast er að koma í veg fyrir að slíkt geti gerst. Tilraunir til að fæla síld frá því að ganga inn í fjörðinn, t.d. með ljósum eða hljóðum hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Eina leiðin til að tryggja að síld gangi ekki inn í Kolgrafafjörð er því að loka firðinum og koma þannig í veg fyrir mögulegt tjón sem gæti numið milljörðum króna fyrir þjóðarbúið.“ Skorar bæjarráðið á umhverfisráðherra að leyfa lokun fjarðarins strax.  Bæjarráð vill að kannað verði hversu langan tíma Vegagerðin þarf til framkvæmda sem nægja til að halda síld utan brúar. Um tímabundnar aðgerðir gæti verið að ræða, ef það er tæknilega mögulegt.

Hér þarf að hafa hraðar hendur, enda var síldardauðinn síðastliðinn vetur skilgreindur sem náttúruhamfarir.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert