Rannsaka fjárkúgun

Bolungarvík
Bolungarvík mbl.is/Sigurður Bogi

  Lögreglan á Vestfjörðum hefur hafið formlega rannsókn á því hvort starfsmaður fiskvinnslu hafi krafið samlanda sína um eitt þúsund evrur sem kæmu þangað til vinnu.

„Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarna daga barst lögreglunni á Vestfjörðum ábending sem skilja mátti svo að erlendur starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis á Vestfjörðum krefði samlanda sína sem þangað kæmu til vinnu um allháa peningaupphæð í erlendri mynt. Lögreglan á Vestfjörðum hefur hafið formlega rannsókn vegna ábendingarinnar, þ.e.a.s. hvort hún eigi við rök að styðjast og hvort um saknæman verknað sé að ræða. Frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

Lögreglunni barst nýverið bréf þar sem pólskur verkstjóri hjá fiskvinnslufyrirtækinu Jakobi Valgeir ehf. í Bolungarvík er sakaður um að innheimta 1.000 evrur (sem jafngildir um 166.000 kr.) af öllum Pólverjum sem fá vinnu hjá fyrirtækinu.

Ábendingin tekin alvarlega

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert