Áfram í gæsluvarðhaldi vegna vændismáls

Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 8. nóvember.
Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 8. nóvember. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Fjórir karlar, sem handteknir voru í Strawberries málinu um liðna helgi, voru í dag úrskurðaðir af Héraðsdómi Reykjavíkur í áframhaldandi gæsluvarðhald til 8. nóvember, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu snýst rannsóknin um ætlaða sölu og milligöngu vændis, af hálfu forsvarsmanns og starfsmanna staðarins. Alls hafa sex menn verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við málið, en tveir þeirra eru nú lausir úr haldi lögreglu.

Um síðustu helgi voru fimm menn handteknir á staðnum og honum í kjölfarið lokað. Nokkrum dögum síðar var einn til viðbótar handtekinn í þágu rannsóknarinnar. Sá síðastnefndi er einn þeirra sem í dag voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald.

Mennirnir eru allir á fertugs- og fimmtugsaldri.

Fimm í gæsluvarðhald

Handteknir grunaðir um vændisaup

Konur, kampavín og kynlíf eiga betra skilið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert