Ferðaþjónusta stærsta starfsgreinin

Reykjanesbær
Reykjanesbær mbl.is/Sigurður Bogi

Ferðaþjónusta og samgöngur eru í mikilli sókn í Reykjanesbær og eru nú orðin stærsta starfsgrein íbúa þar, samkvæmt nýrri könnun MMR sem unnin er fyrir atvinnu- og hafnasvið Reykjanesbæjar.

Samkvæmt henni starfa alls 19,6% íbúa Reykjanesbæjar við ferðaþjónustu og samgöngur

„Þetta er talsvert hröð þróun frá því vor en þá voru tæplega 17% starfandi íbúa við þessa grein“. Segir Árni Sigfússon bæjarstjóri. „Það á þó ekki að koma á óvart því fjölgun í ferðaþjónustu hefur verið mikil á þessu sumri og vonandi að störfin haldist lengur út árið en verið hefur undanfarin ár.“

Næst stærsta atvinnugreinin tengist fræðslu, þjálfun og menningarstarfsemi með um 14,9% starfandi íbúa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert