Annað skip tekur farm Goðafoss

Mynd sem tekin var með eftirlitsbúnaði flugvélar Landhelgisgæslunnar af Goðafossi …
Mynd sem tekin var með eftirlitsbúnaði flugvélar Landhelgisgæslunnar af Goðafossi sl. mánudag. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Goðafoss, flutningaskip Eimskips, er nú í viðgerð í Færeyjum eftir að eldur kom upp í skipinu sl. mánudag. Annað skip tekur farm Goðafoss í Færeyjum og siglir með hann til Íslands.

Að sögn Ólafs W. Hand, upplýsingafulltrúa Eimskips, siglir Goðafoss að lokinni viðgerð til Rotterdam og heldur þaðan áfram reglubundnum siglingum. Skipið sem tekur farminn í Færeyjum er væntanlegt til Íslands nk. mánudag en Goðafoss var með margskonar dagvöru um borð; matvöru, bækur o.fl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert