Meirihlutinn myndi kolfalla

Samkvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið myndi L-listinn á Akureyri bíða afhroð ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga nú.

Listinn fengi 13,5% atkvæða og einn bæjarfulltrúa kjörinn en fékk 45% í síðustu kosningum og sex manna hreinan meirihluta, að því er fram kemur í umfjöllun um niðurstöður skoðanakönnunarinnar í Morgunblaðinu í dag.

Björt framtíð kæmi ný inn í bæjarstjórn með 16% atkvæða og tvo menn. Sjálfstæðisflokkurinn fengi mest fylgi, eða 20,7%, og þrjá menn kjörna. VG fengi 16% og tvo menn, Framsóknarflokkurinn 15,6% og tvo menn og Samfylkingin 11% og einn mann. Bæjarlistinn fengi aðeins 1,7% atkvæða, myndi missa sinn eina mann í dag. Hinir minnihlutaflokkarnir í bæjarstjórn eru núna með einn mann hver.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert