Strætó frestar hækkun fargjalda

Stjórn Strætó bs. hefur ákveðið að fresta fyrirhuguðum gjaldskrárbreytingum, sem áttu að koma til framkvæmda 1. desember. Ákvörðun verður tekin um hvort af breytingunum verður þegar fjárlög liggja endanlega fyrir.

Í fréttatilkynningu frá Strætó segir að samkvæmt áætlun eigi að renna 956 milljónir króna frá ríkinu til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu árið 2014, út frá samningi ríkisstjórnarinnar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um eflingu almenningssamgangna. Fjárlagafrumvarpið geri hins vegar aðeins ráð fyrir 822,6 milljónum króna í málaflokkinn.

Stjórn Strætó bs. mun taka ákvörðun um hvort gjaldskrá fyrirtækisins verður breytt þegar fyrir liggur hvert framlag ríkisins verður í fjárlögum 2014. Til stóð að hækka gjaldskrána að meðaltali um 7%, frá og með 1. desember, en, líkt og áður segir, hefur því nú verið frestað.

Bókun stjórnar Strætó bs., samþykkt á stjórnarfundi 29. nóvember 2013:

Stjórnin samþykkir að fresta áður samþykktri gildistöku gjaldskrárhækkunar og vísa málinu til frekari umfjöllunar þegar niðurstaða fjárlaga um framlag ríksins vegna samnings um eflingu almenningssamgangna á höfurborgarsvæðinu liggur fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert