Biðja fólk um að eyða gögnum

Hakkarinn AgentCoOfficial sagði frá árásinni á vefsíðu Vodafone á Twitter …
Hakkarinn AgentCoOfficial sagði frá árásinni á vefsíðu Vodafone á Twitter í morgun.

Vodafone biður þá sem eru með gögn sem lekið var í nótt að eyða þeim því persónulegar upplýsingar um einkamál fólks er að finna í gögnum sem tyrkneskur hakkari stal í innbroti á vefsíðu Vodafone í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vodafone.

„Birting umræddra gagna getur haft í för með sér óafturkræfan skaða fyrir saklaust fólk.  Við hjá Vodafone minnum á að aðgát skal höfð í nærveru sálar og höfðum til siðferðiskenndar fólks um að taka ekki þátt í að dreifa umræddum gögnum.

Við bendum á að það er skýrt lögbrot að birta persónuupplýsingar af þessu tagi. Við biðjum þá sem nálgast hafa stolnu gögnin að eyða þeim hjá sér en deila þeim alls ekki.  Með því leggið þið ykkar á vogaskálarnar við að verja saklaus fórnarlömb þessa innbrots,“ segir í tilkynningu frá Vodafone.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert