Býst við áróðri kröfuhafa

Tilraunir verða gerðar til að hafa áhrif á umræðu um skuldaniðurfellingaráform ríkisstjórnarinnar og taka ber áróðri erlendra kröfuhafa með fyrirvara.

Þetta var á meðal þess sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, sagði þegar Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, ræddi við hann og Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, í beinni útsendingu á mbl.is í gær. Upptaka af þættinum í heild fylgir þessari frétt.

„Það eru ekki síst erlendir aðilar sem eiga mikla hagsmuni undir og þar af leiðandi með nánast ótakmarkað fjármagn til að gæta þeirra. Það er erfitt fyrir lítið land að verjast því að öllu leyti. Það er best gert með því að hafa varann á hvað umræðuna varðar og að taka hlutum sem koma úr þessari átt með fyrirvara,“ sagði Sigmundur Davíð.

Umræðurnar í gær voru lokahnykkurinn í 100 daga ferð Morgunblaðsins …
Umræðurnar í gær voru lokahnykkurinn í 100 daga ferð Morgunblaðsins um landið í tilefni af aldarafmæli blaðsins. mbl.is/Ómar
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert