EasyJet stórhuga um Íslandsferðir

Hugh Aitken framkvæmdastjóri Easy jet.
Hugh Aitken framkvæmdastjóri Easy jet. mbl.is/Árni Sæberg

Breska lágfargjaldaflugfélagið easyJet hyggst flytja um 250 þúsund farþega til og frá Íslandi árið 2014.

Langflestir þeirra eða 70% verða á leið til Íslands, segir Hugh Aitken, framkvæmdastjóri easyJet í Bretlandi, í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið.

Flestir erlendir ferðamenn koma til Íslands frá Bretlandi og Bandaríkjunum. EasyJet hóf að fljúga hingað til lands fyrir 18 mánuðum. Flogið er til Íslands frá Edinborg í Skotlandi, London og Manchester í Englandi og í næstu viku hefst flug frá ensku borginni Bristol og Basel í Sviss bætist í hópinn í apríl, að því er fram kemur í viðtali við Aitken í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert