Fjárlögin aftur úr nefnd

Alþingishúsið.
Alþingishúsið. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Fjárlaganefnd hefur nú farið yfir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár og hefur málið verið afgreitt úr nefndinni. Breytingatillögur og nefndarálit meirihluta nefndarinnar verður dreift á Alþingi á morgun.

Hlé var gert á kvöldfundi Alþingis klukkan 22.00 í kvöld en þá kom fjárlaganefnd saman á ný og afgreiddi frumvarpið á ný úr nefndinni eftir aðra umræðu. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, hafði meðal annars skorað á forseta þingsins að úrskurða um hvort nefndin hefði brotið þingskapalög en nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar höfðu áður sagt að gengið væri í berhögg við lög með því að afgreiða málið úr nefndinni án nefndarálits.

Þingfundur stendur enn yfir á Alþingi en nú fer fram önnur umræða um fjáraukalög. Auk þeirra eru 23 mál á dagskrá þingsins í kvöld. Stefnt er að því að önnur umræða um fjárlög næsta árs fari fram á Alþingi á föstudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert